13.3.2012 | 21:09
Seljum flöskur
Hæ,
Við Stefán Matti komum heim í dag og ég bað hann að taka nokkrar hálfs lítra gosflöskur úr bílnum sem ég var orðin ansi leið á en hafði láðst að taka því ég er alltaf með svo mikið af öðru að bera. "Nei, ég vil ekki taka þær, mamma." Svo ég bætti við að maður gæti fengið pening fyrir þær og ef hann tæki þær mætti hann selja þær og eiga peninginn.
Ég var að tína annað dót úr bílnum og taka dótturina úr barnabílstólnum þegar ég heyri í honum, búinn að stilla sér við gangstéttarbrúnina: "FLÖSKUR TIL SÖÖÖÖLUUU!!! VILL EINHVER KAUPA FLÖÖÖÖSKUUUUUR!"
Nei við teljum þær og förum með þær í SORPU og fáum greitt inn á debetkortið hennar mömmu og svo lætur mamma þig hafa peninginn...
"Nú, svoleiðis..."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2012 | 13:02
Stefán Matti yndislegi
Stefán Matti, bráðum 7 ára, þegar gengið var til hvílu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2012 | 12:30
Ballet taktar!
Hæ,
Á sunnudagskvöldið duttum við Eggert Aron, 12 ára, inn í mynd um kínverskan strák sem fékk að fara til Bandaríkjana að dansa ballet: Balletdansarinn lyftir ballerínu hátt upp yfir höfuð sér og hún breiðir lappirnar svoleiðis út til beggja átta að mig hreinlega verkjaði í mjaðmirnar mínar við að horfa á þessar aðfarir og ég hrópa upp fyrir mig: "Ái, þetta myndi nú alveg fara með mjaðmirnar á mér!" Þá segir Eggert Aron: "Hann gæti nú í fyrsta lagi aldrei lyft þér svona upp mamma..."
Og ég sem hélt að enginn tæki eftir þessum meðgöngu-og brjóstagjafakílóum sem hafa skráð lögheimili sitt hjá mér í gegnum árin! Ætti maður ekki að fara að hugsa sér til hreyfings og segja upp leigunni við "sykurpúkann" og "Ég hef ekki tíma til að undirbúa matinn minn"-púkann?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2011 | 17:54
Spjall við strákana
Hæ,
Stefán Matti fékk vin sinn í heimsókn sem er alveg hreint að verða 4 ára. Við vorum að spjalla saman og ég spurði sí svona þó ég vissi það: "Hvar vinnur pabbi þinn?" Ekki stóð á svarinu. Hann vissi nafnið á fyrirtækinu. "Og hvað gerir hann þar?" Og hann vissi það: "Hann er Forstjórinn".
"Stefán Matti, hvar vinnur pabbi þinn?"
"Hann vinnur í vinnunni sinni og svo kemur hann alltaf heim aftur"
"Hvað heitir þar sem hann vinnur?" Það stóð á svarinu... Ég sagði honum það og sagði svo: "og hann er forritari" og þá hrópaði litli vinurinn: "Vá, er pabbi þinn forRIDDARI!!!" Stefán Matti var mjög ánægður með þennan fína Riddara-pabba og forstjórapabbinn fékk enga athygli...
Svo héldum við áfram að leika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2011 | 20:54
Trampólínið farið!
Hæ,
Nú er sumri tekið að halla, krakkarnir byrjaðir í skólanum og allt að komast í rútínu.
Trampólínið sem var keypt í fyrrasumar og var svo fínt stendur algjörlega örmagna eftir sumarið úti á bletti og fer ekki fet. Það væri óskandi að maður gæti borgað leigubíl undir það út á Sorpu: "Ok bæ, takk fyrir alla skemmtunina!" En það er ekki þannig. Við fórum út á blett og ætluðum að byrja að rífa það í sundur en komumst þá að því að það var ansi ryðgað þannig að þjösnast þurfti á skrúfum og samskeytum til að ná því í sundur. Ég sagði við son minn: "Hugsaðu nú um allt óréttlæti heimsins og notaðu reiðina til að rífa í sundur trampólínið". Þá sagði vinur hans, 11 ára: "Já, hommar eru bannaðir í 82 löndum heimsins. Hvar er réttlætið í því?!?" Ég hváði og spurði hvernig hann vissi það og þá svaraði hann: "Ég mætti á Gay Pride".
Svo rifum við niður trampóið yfir þessu óréttlæti.
Kv
Friðrika
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2011 | 22:29
Ís
Einu sinni skrifaði ég bloggfærslu um ís.
http://gargantua.blog.is/blog/gargantua/entry/567494/
Um daginn var lítil vinkona sonar míns að fara í smá aðgerð og það þurfti að svæfa hana. Stefán náði í smáaura og spurði hvort hann mætti gefa vinkonu sinni peninginn: "Því þá elskar hún mig, mamma eins og ég elska þig þegar þú kaupir ís fyrir mig."
Ís er ekki bara ís...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2011 | 01:19
Eggert og leikskólinn
Ég varð fertug í síðustu viku, vúhú! Við tókum alveg ægilega vel til og höfðum fína veislu með hjálp Jóa Fel, gosi og kaffi úr Melabúðinni og víni frá vinekran.is. Í tiltektinni í hillunum hjá Eggert kom nú ýmislegt skemmtilegt í ljós. Þar á meðal var útskrftarskírteini úr leikskóla skrifað með flúraðri skrift "Hér með viðurkennist að Eggert Aron Sigurðarson hefur útskrifast blablabla" Eggert spurði hvort hann ætti ekki bara að henda þessu og ég sagði eitthvað á þá leið að þetta væri nú alveg gaman að eiga seinna... "Mamma, ég meina þú ferð ekkert að monta þig seinna við vinkonurnar: "Sonur minn útskrifaðist nú úr leikskóla, toppaðu það!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2011 | 09:42
Kjarval
Eggert Aron kom heim úr skólanum einn daginn og sagði: "Mamma,ég heyrði það heimskasta sem ég hef heyrt um ævina núna í vikunni. Bekkurinn minn var á Kjarvalsstöðum og ein stelpan sagði: "Hva, er KJARVAL dáinn!!!
Kveðja
Friðrika
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2011 | 08:53
Nýjar bækur!
Hæ,
Við Stefán sátum mjög þétt aftur í og vorum á leiðinni upp í bústað. Ég var að segja honum að ég hefði tekið tvær nýjar bækur á bókasafninu. Önnur héti "Húsið mitt" og hin héti "Ég sé þig ekki". Hann var upptekinn við að horfa á hestana út um gluggann en snéri sér við og horfði í augun á mér og veifaði: "Ég er hérna, mamma!"...
Snúlli
kveðja
Friðrika
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2011 | 12:35
Sumir á, sumir á, sumir á bomsum!
Hæ,
Við Eggert Aron 11 ára vorum að keyra og hann setti Tvöfalda Bítið með Stuðmönnum á. Við sungum hástöfum með Sigurjón Digra: "Sumir á, sumir á, sumir á bomsum, aðrir á, aðrir á, aðrir á flókum!" Svo sagði Eggert upp úr eins manns hljóði þegar við vorum nú aðeins farin að róast: "Mamma, það var ekki einungi sorglegt fyrir Stuðmenn þegar hann Flosi Ólafsson féll frá heldur var það mikill missir fyrir alla íslensku þjóðina".
Ég vissi ekki að hann vissi hver Flosi væri...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



sillaisfeld
om
jahernamig
annasig
fjallakor
eydis
gudjonbergmann
johannbj
mariataria
ragganagli
sirrycoach









